Showing posts with label Gagnrýnin hugsun. Show all posts
Showing posts with label Gagnrýnin hugsun. Show all posts

Friday, February 24, 2012

Trúboð eða -fræðsla í grunnskólum



Ég tók mig til og las námskrána í kristnum fræðum áðan. Ég get ekki sagt annað en að mér hafi brugðið nokkuð rækilega. Ég er hræddur um að þar sé ekki hjálpað við að gera skýran greinarmun á trúboði og trúfræðslu. Þvert á móti virðist vera stundað reglulegt og markvisst trúboð í yngri bekkjum grunnskólans.

Það er, ef menn færu eftir námskránni. Sem fáir gera. Þrátt fyrir að námskrár hafi reglugerðargildi.

En skoðum dæmi.

Sex ára börn eiga að:


„...kynnast kristinni sköpunartrú og skoða sjálf sig, umhverfi sitt og samskipti við aðra í ljósi hennar“
„...kynnast frásögunum af fæðingu Jesú, læra einfalda jólasálma og kynnast íslenskum jólasiðum“
„...kynnast afstöðu Jesú til barna, m.a. með frásögunni Jesús blessar börnin“
„....fái tækifæri til leikrænnar tjáningar á atburðum úr biblíusögunum“
„...heimsæki kirkju og skoði helstu kirkjumuni“
„...geri sér ljóst hvað bæn er og læri að þekkja Faðir vor og aðrar valdar bænir“

Ári seinna eru þau orðin nógu þroskuð til að:

„...skoða og ræða listaverk sem túlka efni Biblíunnar og fá tækifæri til eigin listsköpunar“

Ári eftir það er tímabært að þau:

„...viti hvað kristniboð er og kynnist starfi íslenskra kristniboða erlendis“

Níu ára börn skulu:

„...auka þekkingu sína á dauða og upprisu Jesú, t.d. með kynnum af frásögum af yfirheyrslunum yfir Jesú og dauðadómnum, sögunni af ferð kvennanna að gröfinni á páskadagsmorgni og þekki frásöguna af því þegar Jesús birtist lærisveinum sínum við Tíberíasvatnið eftir upprisuna“

Auka „þekkingu“ sína á upprisu Jesú!?

Þau skulu líka:

„...heimsækja kirkju og þekkja nokkur trúarleg tákn og merkingu þeirra, kunna skil á guðsþjónustunni og helstu kirkjulegum athöfnum, svo sem skírn, fermingu, hjónavígslu og útför“

Og tíu ára börnin eiga að:

„...öðlast skilning á ástæðunum fyrir kristniboðs- og hjálparstarfi kristinnar kirkju og þekkja til einstaklinga sem unnið hafa að þvi“
„...fá vitneskju um hugtakið heilagur og mismunandi merkingar þess og temji sér virðingu fyrir því sem öðrum er heilagt“

Ég get ekki með nokkru móti séð að heimsókn Gídeón-manna stangist á við reglur aðalnámskrár. Þvert á móti eru þær í fullu samræmi við þær.

Og ganga raunar stutt.

Ég er ekki viss um að allir myndu hrópa húrra ef kristnir söfnuðir færu nú að krefjast þess að kristin fræði séu kennd nákvæmlega eins og reglur kveða á um.



Um íslenskukennslu





Nú liggja í meltingarvegi „kennaraháskólans“ kennarar af fyrstu kynslóð nýrra og endurbættra kennara – sem hafa fimm ára nám að baki sér þegar þeir hefja störf. Eða þeir eiga að gera það. Orðið á kennarastofunni er að vandræðalega stór hluti þeirra sem lokið hafa þrem árum hyggist klára síðustu tvö árin í einhverju allt öðru – og ljúka meistaranámi (sem er skilyrði kennsluréttinda hér eftir) í einhverju ánægjulegra eða praktískara en þeir hafa nú eytt þremur árum í.

Það er svosem ekki undarlegt að við þessar aðstæður komi fram fagstéttir sem vilja nýta rýmið sem tvö auka ár gefa til að skara eld að sinni köku. Nú vilja til dæmis íslenskumenn að kennurum sé kennd meiri íslenska.

Ef ég væri valdameiri en ég er þá myndi ég gerbreyta kennaranáminu og taka upp a.m.k. heilt skólaár þar sem kennaranemar starfa við kennslu með stuðningi. Þeir fengju það sáralítið launað – og í staðinn fengju skólar sem taka á móti þeim að senda sitt fólk í endurmenntun og teymisvinnu inni í háskólanum. Fólkið með reynsluna færi eina og eina viku inn í háskólann og aflaði sér þekkingar á því sem þar er nýtt og skilaði þangað inn því sem er að gerast úti í skólunum. Og skólinn gæti hæglega sleppt mönnum til verkanna vegna þess að eyðan sem þeir skilja eftir sig yrði ríflega mönnuð með kennaranemum.

En ég er ekki valdameiri en svo að ég verð að láta nægja að básúna þetta hér. Og ég er allt of ungur og frjór og lífsglaður og hégómlítill til að dúndra mér í doktorsnám til þess eins að enda sem kennari í háskólanum. Það eru ömurleg örlög.

En að því sögðu þá held ég að það megi vissulega bæta íslenskukennslu. En mikið óskaplega vildi ég að íslenskir kennarar hefðu hugrekki til að rífa greinina upp úr þeim hjólförum að verða einna helst þeim að gagni sem vilja geta stafsett sæmilega rétt það sem þeir hafa eftir öðrum. Því hin stóra meinsemd íslenskukennslunnar er að það skortir upp á að gera nemendur færa um að skilja, skapa og tjá. Allt annað er hjóm.

Eina leiðin til að viðhalda tungumáli er stanslaus sköpun. Málið þarf að spretta upp úr sverðinum hvar sem litið er – og ákveðin órækt er ekki aðeins æskileg, heldur bráðnauðsynleg. Tungumál varðveitast ekki öðruvísi en með sífelldri lifun. Afskorin blóm sölna fyrr eða seinna.

Það er freistandi að enda þetta á tilvitnun í virðulega suðurþingeyska móðurmálskennara sem gátu varla á heilum sér tekið þegar kommúnistarnir í Reykjavík fóru að dæla úrkynjuðu skrípamálfari inn á íslensk heimili undir yfirskyni fagurbókmennta. Og ég ætla að láta eftir freistingunni.

Þeir skrifuðu að sjálfsögðu bréf til að kvarta en uppskáru ekkert nema skæting frá ungum þýðanda sem annaðhvort kunni ekki eða vildi ekki tala íslensku alminlega og eins og reglugerðir kváðu á um. Þeir skrifuðu því annað bréf og sögðu þar um ódáminn:

Framkoma hans í andsvörum í Tímariti Máls og menningar, – þar sem hann ræðst eins og dóni að kennurum, og viðurkennir í engu ávirðingar sínar – bendir til þess að honum sé annaðhvort ekki annt um móðurmál sitt, eða hann sé haldinn rithöfundarhroka, sem starblindi hann í sjálfs sín sökum.

Hvort heldur sem er, sýnir, að hann er viðsjárverður maður í íslenzkum bókmenntum.


Bölvað gerpið.

Og svo kunni hann ekki að skammast sín. Lét sér nægja að segja að enginn verði rithöfundur fyrr en hann sé vaxinn út úr þeirri hugmynd að til séu orðskrípi.

Og undir slíku gat virðulegt Kennarafélag S.–Þing. ekki setið. Það var enda ljóst að ef fleiri tækju upp þennan „orðskrípa- og sóðarithátt [...] væri okkar göfugu tungu geigvæn hætta búin.“

Svo fékk bara drulludelinn Nóbelinn.

Hve margir HKL ætli hafi verið kæfðir í fæðingu af íslenskukennurum þessa lands?

Það sem við kennarar viljum ekki að þið vitið


Opinber skólastefna á Íslandi er sökkvandi skip. Menn eru hættir að dásama hana á tyllidögum. Meira að segja á Titanic struku menn fiðlustrengina þar til þeir urðu blautir á tánum. Á íslenska skólastefnuskipinu er þögn. Vandræðaleg þögn.



Það eru nokkrir mánuðir síðan ég fékk af því flugufregnir að ný, risastór rannsókn á starfsháttum í grunnskólum sýndi miður glæsilega niðurstöðu þegar kæmi að framkvæmd skólastefnunnar. Raunar væru niðurstöðurnar eiginlega ekkert annað en ömurlegar.

Um síðustu helgi, þar sem fyrstu niðurstöður voru kynntar var minn versti grunur staðfestur. Og þótt þetta væru bara fyrstu niðurstöður og enn eigi eftir að rannsaka miklu meira og rýna betur í bakgrunnsupplýsingar og breytur þá blasti við okkur öllum sem mættum á ráðstefnuna hinn ægilegi sannleikur.

Íslenskir kennarar eru búnir að gefast upp á hinni opinberu skólastefnu og hafa ekki lengur áhuga á að framfylgja henni.

Hin opinbera skólastefna felst í því að hvert barn, óháð því hvar það situr á hinum og þessum  normalkúrfum, eigi rétt á því að fá nám við hæfi og tilheyra samfélagi með öðrum börnum á svipuðu reki. Það sé með öðrum orðum liðin tíð að stærsti sameiginlegi nefnarinn ráði för í skólakerfinu, allt sé miðað við hann. Og að frávikum sé raðaða saman eftir sérkennum í lokuðum hólfum.

Skóli án aðgreiningar er ekki ný hugmynd. Henni er stefnt gegn þeirri hómópatísku gervivísindahugmynd að líkt lækni líkt. Þeirri hugsunarvillu að best sé að flokka fólk eftir sameiginlegum, yfirborðskenndum eiginleikum. Hún felst í þeirri hugsjón að samfélagið skuli tilheyra okkur öllum – þótt við séum ólík.



Í stuttu máli virðist opinbera skólastefnan Skóli án aðgreiningar aðeins hafa skilað vélrænu afgreiðslukerfi fyrir börn, og sérkerfi fyrir þau sem valda kerfisvanda. Ráðist var að „rót“ vanda þeirra barna sem ekki náðu viðunandi árangri eða ekki voru til friðs með greiningar- og gátlistum. Sem gjarnan voru fullir af spurningum eins og þeirri hvort barnið ætti erfitt með að bíða eftir að röðin kæmi að því eða hvort það ætti erfitt með að sitja kyrrt.

Öll þau ár sem ég hef starfað sem kennari man ég aldrei eftir því að hafa fengið gátlista um þá kennsluhætti sem barninu var boðið upp á. Ég var aldrei spurður hvort gerð væri meiri eða minni krafa um kyrrsetur og þagnir. Aldrei var athugað hvort vinnuaðferðir væru hugsanlega einhæfar eða skólaumhverfið heftandi.

Og foreldrarnir sem dauðskömmuðust sín fyrir að hafa eignast „erfitt“ barn þorðu sjaldnast að efast um starfsaðferðir skólans eða spyrja um frammistöðu kennarans af ótta við að slík leiðindi væru talin til marks um arfgengan kvilla – sem nú gengi aftur í barninu.

Barnið fékk því lyf. Kennarinn fékk skýrslu. Skýrslan endaði á nokkrum hugmyndum um hvernig hægt væri að sinna „svona“ börnum. En svo hélt lífið áfram.

Ég kenndi einu sinni dreng sem var á slíkum lyfjum. Einu sinni þegar skólabróðir hans var að gista hjá honum sá hann hvar drengurinn þóttist kyngja töflunni en hrækti henni svo út úr sér. Sá sem varð vitni að þessu spurði hissa hvað hinn væri eiginlega að gera. Sá svaraði að hann væri að fara í hlaup í íþróttum og hann hlypi hægar þegar hann tæki lyfin. Sami drengur, komst ég síðar að, stundaði það að „taka sig af lyfjunum“ með þessum hætti þegar til stóð að fara í gönguferðir eða hjólatúra þar sem hann þurfti á allri sinni orku að halda.

Að hugsa sér. Þá daga sem skólinn veitti honum útrás fyrir hreyfiþörfina þurfti hann ekki lyf. Þvert á móti þvældust þau fyrir.

Hvað fyndist okkur um það ef góðu, bókelsku börnin sem alltaf standa sig vel væru sett á amfetamínskyld lyf vegna þess að þau eru svoddan gufur í leikfimi. Og leikfimikennarar og menntakerfið væri búið að fá sig fullsatt af því að það tæki barnið 3 mínútur að hlaupa 400 metrana.

Við myndum ekki einu sinni hugleiða slíkar lausnir. Vitandi það að það hvort barn fer 400 metra leið á 1 mínútu eða 3 er ekki grundvallaratriði í farsæld þess og framtíðarlífi.

KF NÖRD á góðri stundu


Það sem við sum höfum ekki áttað okkur á er að hið sama gildir líka um annað nám. Það skiptir ekki máli hvort barn er eitt ár eða þrjú að læra grunnatriði algebru.

Nema...

...við höfum hannað skólakerfi sem treystir á það að allir læri það sama á sama tíma. Þá fara hægfarabörnin að þvælast fyrir og þeim hraðskreiðu fer að leiðast.

Og...

...ein niðurstaða rannsóknar á skólastarfi bendir til þess að meirihluti allra barna á Íslandi sé enn undir lítt sveigjanlegu framkvæmdavaldi kennarans. Og að oftar en ekki mætir nemandinn í skólann til að láta mata sig í þrjátíu manna hópi þar sem einn kennari stendur í stafni og kennir öllum það sama á sama tíma – eða réttir börnum bækur og lætur þau kenna sér sjálf. Og öll fá þau meira og minna sömu bókina sem á að vera á sömu blaðsíðu.

Þið fyrirgefið, en þetta er svolítið eins og að vera enn að hlaupa með sendibréf á milli bæja í stórri sveit þótt það sé kominn sími.

Tæknin hefur fyrir löngu gert okkur kleift að einstaklingsmiða nám.

En jafnvel þar sem tæknin er ekki til staðar eru margar leiðir til að einstaklingsmiða nám.  Það eru margar leiðir til að búa til skóla án aðgreiningar.

Það eina sem ekki er hægt að gera er að ætla öllum að vera svotil eins. Það gengur ekki, hefur ekki gengið og mun ekki ganga.

Menn láta stundum eins og það sé eitthvað nýtilkomið að til séu „fráviksbörn“ og að í gamla daga hafi flest fólk getað svipaða hluti. Það sé bara tómt eftirlæti að ætla að breyta kerfinu til að rúma börn sem þurfi fyrst og fremst að læra að haga sér.

Þegar háskólar voru opnaðir konum fylgdi því undarleg aukaverkun. Í framhaldinu fæddust sífellt fleiri börn sem urðu einhverf. Á tímabili röktu menn þessa aukningu til bólusetninga. En raunin mun vera sú að ástæðan var eiginlega fyrst og fremst sú að afburðagreindir karlar voru farnir að ná sér í konur og eignast börn. Þessir sömu karlar höfðu öldum saman verið í hálfgerðum karlabúrum inni í háskólunum þar sem fáar konur sýndu þeim áhuga og þeirra eina kynferðislega dægradvöl var að fróa sér eða hommast. En hommar hafa lengi riðið röftum í háskólakerfinu – enda bendir ekkert til annars en að gáfað fólk hafi kynhvöt eins og annað fólk – þótt leiðir til útrásar (og þar með fjölgunar) hafi ekki alltaf staðið galopnar.




En sumsé. Gáfuðu konurnar fengu loks að fara í skóla til gáfuðu karlanna og þau eignuðust saman einhverf börn. Aukning einhverfu stafar að einhverju leyti af því að menntafólk er farið að fjölga sér (þetta sama fólk var líklegra til að láta bólusetja börnin sín og þaðan mun misskilningurinn um tengsl bóluefna og einhverfu hafa sprottið).

Þessi tengsl milli afburðagreindar og einhverfu hafa varpað upp áhugaverðum spurningum á borð við þær hvort mælikvarði á greind hafi verið of þröngt strikaður. Hvort það sem álitið hafi verið yfirburðir hafi aðeins verið það á mjög þröngu og afmörkuðu sviði en jafnframt verið einkenni sérvisku eða jafnvel meingallaðrar persónugerðar. Að það sem talið var kostur – reyndist vera galli þegar kerfinu var breytt.

Hefðu menn haldið sig við skrifleg próf og rökfærsluritgerðir hefði aldrei reynt á gallann. Hefðu konur áfram verið kúgaðar og haldið skipulega frá námi kynni gallinn heldur aldrei að hafa uppgötvast. En það var aðeins innan þessa verndaða og ómanneskjulega umhverfis háskólalífsins sem gallinn var ósýnilegur.

Og mig grunar ansi sterklega að mörg af þeim börnum sem á Íslandi teljast „gölluð“ séu á sama hátt aðeins gölluð þegar þau eru skoðuð innan þess þrönga ramma sem skólasamfélagið setur þeim. Að þótt gallinn sé berlega ljós þegar börnin megna ekki að sitja kyrr og snúa að töflunni tímunum saman eða þegja þá sé mun auðveldara að breyta kerfinu en börnunum.

Því á sama hátt og konur áttu fullt erindi í háskóla – þá eiga öll börn (að mínu mati) erindi í grunnskóla.

Og þau eiga erindi í venjulegan grunnskóla. Ekki einhvern sérhannaðan til að aðstoða „erfið börn.“

Það á síðan að vera verkefni starfsfólksins í skólanum að sjá til þess að skólinn geri sitt besta til að laga sig að hverju barni. Það getur verið strembið verk. En það er hægt. Þó ekki án þess að hugsað sé út fyrir þann kassa sem skólaborðið er og kennslustofan.

Og starfsfólkið í skólunum þarf að standa í öndvegi í baráttu fyrir þessi börn og krefjast þess að þannig sé búið að þeim að þau þrífist innan skólans eins og önnur börn. Og starfsfólkinu þarf að þykja vænt um þau eins og önnur börn og finnast mikilvægt að skólinn sinni þeim og þau fái að vera þátttakendur í skólasamfélaginu.

En þannig er það ekki.

Áralöng vanræksla á þessu verkefni hefur orðið til þess að kennararnir hafa misst trúna. Þeir eru við það að gefast upp. Og það sem verst er, þeim finnst ekki einu sinni mikilvægt að reyna. Það er bara vesen. Þetta er ekki til neins.


Helmingur kennara er áhugalaus eða á móti því að skólinn sé opinn öllum börnum. 

Þessi helmingur sem búinn er að gefast upp vill börnunum áreiðanlega ekkert illt. Hann telur einfaldlega ekki mikilvægt að framfylgja opinberri skólastefnu.

Og þegar annar hver kennari telur verkefnið ekki mikilvægt þá er hreinlega útilokað að það takist.

Við kennarar erum oft furðu hörundsárir. Það má ekki tala illa um okkur. Við verðum alveg brjáluð. Við teljum okkur gera fjandakornið nóg fyrir þessi lélegu laun.

En við þurfum að horfast í augu við það að þetta er ekki boðlegt. Það er ömurlegt að fagstétt skuli ekki hafa meiri metnað eða hugmyndafræðilega sýn en svo að það sé bara ókei að finnast það ekki mikilvægt að barn fái að fara í skólann sinn.

Þetta er skandall. Stór skandall. Og kennarar geta ekki vísað á aðra og kennt þeim um þessa niðurstöðu. 

Það er örugglega rétt að kennarinn treysti sér illa til að framfylgja stefnunni við þær aðstæður sem skapaðar eru. Það er örugglega líka rétt að einstakir kennarar upplifa sig vanmáttuga gegn slælegri alhliða framkvæmd hugmyndafræðinnar. 

Hvað ef helmingur lækna lýsti því yfir að það væri ekki mikilvægt að fólk fengi læknishjálp í heimabyggð? Myndi fólk áfellast Heilbrigðisráðherrann eða Fjárlaganefnd? Nei. Við myndum móðgast og tala um vanhæfa og áhugalausa lækna. 

En af hverju erum við ekki að tala um þetta? Af hverju erum við kennarar ekki að segja eitthvað? Gera eitthvað? Skoða hverju megi breyta?

Hversu lengi ætlum við að totta dúsur sem innihalda ekkert nema hálftuggnar afsakanir og hálfvelgjur? 

Það er kreppa í skólakerfinu og hún snýst ekki bara um peninga. Og hún verður ekki bara leyst með peningum.

Það sem fyrst og fremst kreppir er kerfi sem viðheldur vanda í stað þess að leysa hann.

Skólar eiga að vera hlutlausir.


Nú er búið að kæra Snorra til lögreglu fyrir að halda því fram að samkynhneigð sé synd. Málinu verður væntanlega hent út vegna þess að kærandinn er ekki aðili málsins. Aðeins áhyggjusamur borgari sem telur að Snorri hljóti að hafa brotið lög, auk þess sem bloggfrelsi hans hafi hann framselt þegar hann gerðist kennari:


Að sama skapi má ætla að sá sem tekið hefur að sér kennslu í grunnskóla hafi framselt rétt sinn til að tjá skoðanir sem ganga jafn augljóslega gegn hagsmunum hluta nemendahópsins og bloggskrif Snorra gera,


Hann notar orðið hagsmuni. Nemendur í grunnskólum hafa sumsé hagsmuni af því að hvítasunnufólk og aðrir tali ekki um samkynhneigð sem synd. 


Mig langar að demba hér inn tilvitnun sem ég held að mjög margir, sama hvar þeir standa í málinu, geti tekið undir:


Í skólum sem kostaðir eru af almannafé ætti að vera raunverulegt hlutleysi um trúmál hvar sem þess er óskað.

Sá sem þetta skrifaði var stundum kallaður Mannasættirinn mikli. Hann var virtur og vinsæll amerískur stjórnmálamaður sem var þekktur af því, sem síðar hefur fengið á sig frekar neikvætt orð: popúlismi. Hann var frjálslyndur Demókrati og mikill friðarsinni. Orðin hér að ofan skrifaði hann í litla bók árið 1922, vitandi það að í aðsigi væri mikil orrusta vegna trúmála í skólum.


Hann hét William Jennings Bryan.



Bókin heitir Í sinni mynd.

Efni hennar er langdregin árás á vísindin og þau áhrif sem þau voru að hafa amerískum ungdómi til spillingar. Nokkrum árum seinna vann W.J.Bryan frægt dómsmál sem oft hefur verið kallað Aparéttarhöldin. Þar fékk hann kennara dæmdan fyrir að nota bók í kennslu sem innihélt kafla um þróunarkenningu Darwins.

Hér er önnur tilvitnun úr aðdraganda þeirrar fyrri:

Við Columbia-háskóla (frétti ég hjá babtistaprédikara) hóf prófessor námskeið sitt um jarðfræði á því að segja nemendum að henda burt öllu sem þau hefðu lært í sunnudagaskóla. Um prófessor í Yale er sagt að enginn yfirgefi bekkinn hans trúandi á Guð (Þetta hef ég eftir ungum manni sem sagði mér að þessi prófessor væri að afvegaleiða bróður sinn frá kristinni trú). Faðir (og þingmaður) segir mér að dóttir hans hafi sagt þegar hún sneri aftur úr Wellesley að enginn trúi biblíusögunum lengur. Annar faðir (og þingmaður) segir mér af syni sínum en grafið var undan trú hans með þessari kenningu [Darwins] í guðfræðinámi. Þrír prédikarar hafa sagt mér að þeir hafi fengið áhuga á efninu þegar börn þeirra sneru heim úr háskóla með efasemdir um trúna. 

Þegar W.J.Bryan óskaði eftir raunverulegu hlutleysi var hann allsekki að óska eftir hlutleysi. Hann var að óska eftir friðhelgi. Hann var þeirrar skoðunar að Guðstrúin nyti slíkrar almennrar hylli og væri svo óefuð að hana ætti að verja allsstaðar þar sem hún væri í hættu. Á endanum snerist baráttan gegn guðleysinu um baráttuna milli góðs og ills, ást og haturs.

Hann vitnar í skáldið Bourdillon:

Nóttin hefur þúsund augu
og dagurinn bara eitt,
samt hverfur ljós heillar veraldar
þegar sólin sest 
Hugurinn hefur þúsund augu
og hjartað bara eitt,
samt hverfur ljós heillar tilvistar
þegar ástin er ei meir



Og hann talar um efnishyggju, Nietzsche og nasisma. Hnoðar þetta saman í einn stóran haturvöndul og bendir á að með því að umbera það að ástin, með sinn guðdómlega uppruna, sé soguð úr vitundum barnanna – þvert gegn vilja foreldra þeirra og samfélagsins í heild – sé verið að valda óbætanlegum skaða.

Síðan kemur að kjarna boðskapar hans:

Í fyrsta bréfi sínu (kafli 4:2) [á að vera 4:20] lýsir Jóhannes kærleiksboðorði Krists á róttækan hátt: Ef einhver segir: „Ég elska Guð,“ en hatar bróður sinn, er sá lygari.“
Þetta eru hvöss orð en postulinn var að fást við gríðarlega alvarlegt viðfangsefni, þ.e. hið augljósa ósamræmi milli þess að elska Guð og hata bróður sinn.
Hatur í garð bróðurins getur birst á margvíslegan hátt og við verðum að hafa hugfast að hatur er synd sem birtist frekar í gjörðum frekar en viðurkennd. Ein birtingarmyndin er afskiptaleysi...

Bryan barðist af mikilli hugsjón gegn afhelgun vísindanna. Lokasenna hans við Clarence Darrow er fræg en þar kallaði Darrow, sem varði kennarann í málinu, sjálfan sækjandann, Bryan, til vitnis um kristna trú. Þar álpaðist Bryan til að segja að hann vissi ekki mikið um önnur trúarbrögð enda nægði honum kristnin og að hann vissi ekki að menning Kínverja væri eldri en syndaflóðið. Bryan vann en dó örfáum dögum seinna úr ofþreytu og sykursýki.



Kennarinn var sýknaður af æðri dómstól ári seinna vegna formgalla – það reyndi ekki á hvort það var stjórnarskrárbrot að banna þróunarkenninguna. Eins og síðar varð.

Núna, 90 árum síðar, hefur dæmið snúist við.

Nú á að reyna að setja kennara á sakamannabekk vegna þess að hann telur að kristin trú banni samkynhneigð (með hórlífi, lygum, öfund og öllu hinu sem bannað er). Nú er það sá kristni sem er sakaður um að hata og spilla æskulýðnum. Nokkuð sem jafnvel hugsjónablossandi lýðræðisríki hafa álitið dauðasynd (í óeiginlegri merkingu) frá upphafi. Þetta var sök Sókratesar. Hann gekk um og ringlaði unglinga í kollinum. Ef einhver hefði sagt við Sókrates: „Segðu þessum ungmennum að samkynhneigð sé eðlileg!“ hefði hann sagt: „Hvað meinarðu með eðlileg?“ eða „Hvernig veistu það?“ Hann hefði ekki linnt látum fyrr en ungmennin hefðu verið snarringluð og ekki þorað að slá neinu föstu um samkynhneigð eða nokkuð annað.



Lýðræðið þarf Sókratesana. Þeir gegna því hlutvefki að reyna á fullyrðingarnar. Líka þær heilögu. Þeir eru broddflugur sem stinga svo svíður undan. En þeir viðhalda heilbrigði á stærri kvarða. Ef þeir eru ekki teknir úr umferð og dæmdir.

Hugmyndin um þann skaða sem Snorri veldur eru í besta falli þokukenndar. Hugtakinu hatri er veifað eins og það sé enn sveipað gildishlöðnum, trúarljóma. Ef einhver getur fært rök fyrir því að Snorri hati – á umræðan að enda þar með. Alveg eins og Bryan vonaði að honum tækist að sannfæra lesandann að það að bjarga ekki sálum afvegaleiddra skólabarna væri hatur. Margir vilja meina að samkynhneigð ungmenni bíði skaða af því að vita til þess að kennarinn hafi þessa skoðun. Alveg eins og Bryan taldi sannað að darwinismi væri skaðlegur þegar skoðuð væru áhrif þess að börn færu í háskóla og sneru heim týnd í tilverunni.

Auðvitað er skoðun Snorra ömurleg. Fornarlarleg og heimskuleg. En menn ofmeta stórkostlega áhrif hans á nemendur. Þótt við leggjum það til hliðar hvað nákvæmlega felst í því að hata – þá ganga mörg hundruð skólabörn um göturnar sannfærð um að kennararnir þeirra hati þau. Sum hafa meira að segja rétt fyrir sér.


Á fjöldamörgum heimilum hafa átt sér stað samtöl sem enda á einhverju á borð við: „Ég fékk fjóra í dönsku af því dönskukennarinn hatar mig.“ Í langflestum tilfellum trúi ég mótsvar foreldranna sé:„Láttu ekki svona. Hættu að kenna öðrum um. Þú hefur augljóslega ekki fylgst með í dönskutímum.“


Nú á að reka mann og dæma af því að einhverjir hafa ákveðið að skoðun hans, sem vissulega er kjánaleg og forómafull, sé hættulegt hatur.

Ef skilgreina má hatur frjálslega þá er öruggt að skólakerfið fullt af hatandi kennurum sem láta nemendum líða illa. Margir miklum mun verri en hann. Fáir nenna að fást um það.

Guðbergur Bergsson uppskar lófaklapp og almenna aðdáun fyrir barnhatandi pistil á netinu. Fjöldi fólks sagði opinberlega: „Gott hjá honum. Einmitt það sem ég vildi segja.“ Vegna þess að fólk var pirrað út í óknyttadrengi taldi fólk í góðu lagi að fjörgamall karl og viðhlæjendur hæddust opinberlega að hræddum, litlum dreng sem áttaði sig ekki á því hve ógnvekjandi fullorðið fólk getur verið.

Má bjóða einhverjum kúfaða skeið af hræsni?

Samkynhneigðir nemendur sem líður illa þurfa að díla við allskonar fordóma og erfiðleika. Minnst af því stafar af trúarskoðunum. Mest af því af almennri heimsku og þröngsýni. Það að fjarlægja málglaða, trúaða kennara úr vegi þeirra á krítiskum augnablikum skilar engu. Samkynhneigðir unglingar munu áfram þurfa að díla við útlitsfordóma, hegðunarfordóma og alla hina fordómana sem ekki eru ólöglegir. Eru bara ásættanleg heimska. Samkynhneigður unglingur í tilvistarkreppu reynir yfireitt að mölva niður fleiri veggi en þann eina hvort honum er leyfilegt, þegar þar að kemur, að sofa hjá einstaklingi af sama kyni.

Það að skapa samfélag þar sem leyft er að hugsa og tala frjálst og höggva með meitlum í heilagar kýr og aðrar, gæti orðið að gagni. Því samfélag sem umber að Snorri fái að tilheyra miðaldaklúbbi opinberlega umber einnig og hvetur til þess að öll viðmið séu skoðuð af kappi. Ef menn fá að sveifla sleggjunni aðeins í kringum sig er miklu líklegra að menn mölvi niður fordóma en varnir gegn fordómum. Fordómarnir eru svo miklu viðameiri.